Ýmsar útfærslur:
 

Til baka á heimasíðu

Mynd nr. 2

Mynd nr. 3

Mynd nr. 4

Mynd nr. 5

Mynd nr. 6

Mynd nr. 7

Mynd nr. 8

Mynd nr. 9

Upplýsingar:

Fyrirtækið
Meðmæli
Sendið tölvupóst

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Meðmæli


Nú þegar almenningur, stofnanir og fyrirtæki leita leiða til að minnka mengun og auka sparnað hafa rafbílar komið meira og meira inn í umræðuna sem hagkvæm og umhverfisvæn leið að því marki. Kirkjugarðar Reykjavíkur eru meðal þeirra sem fjárfest hafa í Melex-rafbílum til notkunar við vinnu og hefur reynslan af þeim verið afar góð. Innflutningsfyrirtækið Rafbílar ehf. flytur bílana inn og hafa stórfyrirtæki eins og Íslenska Álfélagið nýtt sér bílana í síauknum mæli.

Meðal þeirra sem keypt hafa bílana eru: álverin, ýmsir garðar, s.s. Húsdýragarðurinn, lystigarðar og kirkjugarðar, orkuveitur, bæjarfélög og fleiri. Bílarnir eru notaðir t.d. við hirðingu, flutning á verkfærum og við ýmsa snúninga.

RAFBÍLAR SPARA ÞEIM SPORIN
Að sögn Heimis Janusarsonar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur hafa bílarnir reynst mjög vel: "Bílarnir hafa komið mjög vel út og þeir hafa breytt allri vinnuaðstöðu okkar gífurlega. Öll stjórnun verður markvissari og yfirferðin meiri. Við spörum sporin og nýtum mannskapinn miklu betur. Auk þess hafa bílarnir heilmikla burðargetu, maður getur t.d. verið með allar græjur á pallinum, klippur og sagir, verkfæri, sand, sement og margt fleira. Svo ekki sé minnst á hvað þetta er gott fyrir lappirnar á manni, en við starfsmenn í Fossvogskirkjugarði vorum yfirleitt komnir með álagssjúkdóma maraþonhlaupara í byrjun júlí, beinhimnubólgu og fleira eftir að hafa arkað um þennan 30 hektara garð alla daga á tveimur jafnfljótum. Rafbílarnir eru einfaldlega frábærir og svo henta þeir svo vel til starfa í kirkjugörðum þar sem viðkvæmar athafnir fara fram, en þeir eru hjóðlátir og fyrirferðarlitlir".

EINFALDIR, VISTVÆNIR, VIÐHALDSLITLIR
Rekstur bílanna er hagkvæmur. Þeir eru skráðir sem vinnuvélar og þess vegna eru ekki lagt á þá skatta og gjöld eins og á hefðbundna bíla. Þessi skráning er þó bundin því að bílarnir geti ekki farið yfir 30km hraða, enda engin þörf á því til þeirra nota sem þeir eru hugsaðir til.

Bílarnir eru líka einfaldir að gerð og viðhaldsfríir að mestu leyti. Hleðslan er ekkert mál, bílnum er einfaldlega stungið í samband og hann hleður sig á 3-4 klukkustundum. Hægt er að aka 70-80 kílómetra á hleðslunni sem dugir oftast, og vel það, í þá vinnu sem bílarnir eru notaðir. Það er því ekki flóknara að hlaða rafbílinn en farsímann, sem flestir stinga í samband á kvöldin.

Bílarnir eru mjög vistvænir. Það eina sem er óvistvænt við þá eru rafhlöðurnar, en þeim þarf að eyða þegar þær eru orðnar ónýtar eftir nokkur ár. Enginn útblástur er af bílunum og engin hávaðamengun heldur.

Ljóst er að rafbílar eru mjög spennandi kostur fyrir kirkjugarðana og marga fleiri sem láta sig umhverfið varða. Meðalverð á Melex-rafbílnum er í kring um milljónina, sem er mun ódýrara en að kaupa pallbíl. Að sögn Þórsteins Ragnarssonar hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur er sex sinnum ódýrara að reka rafbíl en hefðbundinn bíl til vinnu í görðunum. Þarna er því um að ræða umhverfisvæna og hagkvæma leið sem rekstraraðilar kirkjugarða ættu tvímælalaust að kynna sér.

Frekari upplýsingar: EVGuide