Fara í efni

Um okkur

Okkar markmið er að spara þér 1.000.000.-kr í bílakaupum.

Við eigum alltaf bíla á lager.

Við getum líka flutt inn fyrir þig draumabílinn þinn

Við sjáum um allt ferlið frá A-Ö og getum líka fjármagnað bílinn fyrir þig.

Stofnendur Rafbílar ehf. hafa áratuga reynslu af innflutningi bíla og hafa flutt inn rafbíla síðan 2012. Árið 2014 hófu þeir samstarf, fyrst undir nafninu rafbílainnflutningur sem er nú rafbilar.is Félagið hefur allt frá upphafi sérhæft sig í rafbílum og því notað slagorðið, Sérfræðingar í rafbílum.

Við flytjum inn nýja og notaða bíla, nánast eingöngu frá Evrópu sem eru þá í verksmiðju ábyrgð. Öll okkar verð innihalda allan kostnað frá pöntun til afhendingar yfirfarins og nýþrifins bíls til kaupanda á íslenskum númerum.

Við leggjum áherslu á að kúnnar okkar fái þann rafbíl sem hentar þeim best miðað við þeirra kröfur og notkunarmynstur, á betra verði en bílaumboðin.

Sala fer að mestu fram á netinu og í samvinnu við góða samstarfsaðila.

rafbilar@rafbilar.is